ÍSLE1KS02Z - Íslenska með áherslu á innlenda þáttagerð og kvikmyndir
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum er unnið með færniþættina fjóra; tjáningu, læsi, hlustun og ritun. Námsefnið byggir á íslenskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum auk annarra viðfangsefna. Nemendur kynnast fjölbreyttu efni sem gefið hefur verið út á Íslandi í gegnum árin.
Markmið
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- fjölbreytileikaíslenskrarkvikmynda- ogsjónvarpsdagskrárgerðar
- kvikmyndir og þættir séu ákveðin hluti af fjölmörgum tjáningarleiðum
- mikilvægi þess að láta skoðanir sínar í ljós og bera virðingu fyrir skoðunum annarra
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera greinarmun á fræðsluefni og leiknuefni sem hugsað er til dægrastyttingar
- geta fylgst með, hlustað og tjáð sig um viðfangsefnið hverju sinni
- að bera virðingu fyrir sjónarmiðum annarra
- að nota ólíkar leiðir til tjáningar
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- njóta íslensks kvikmynda- og sjónvarpsefnis
- vera meðvitaðri um innihald kvikmynda og sjónvarpsþátta
- víkka sjóndeildarhring sinn í íslenskri kvikmynda og þáttagerð
- tjá sig í hóp og virða skoðanir annarra