Fara í efni

ÍSLE1ÍL02Z - Íslenska með áherslu á ritun og tjáningu/framsögn í fjölbreyttu formi

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með færniþættina fjóra; tjáningu, læsi, hlustun og ritun. Nemendur kynnast nokkrum íslenskum verkum - ljóðum og/eða leikritum – höfundum þeirra og sögusviðinu (tímabil) sem verkin tilheyra.

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • þeim menningar arfi sem felst í ljóðum og leikritum
  • ólíkum leiðum til samskipta og tjáningar
  • mikilvægi þess að hlusta og skiptast á skoðunum

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja til einstakra ljóða og leikrita íslenskra höfunda
  • setja fram stutta og skýra texta
  • spyrja spurninga í hópi og taka þátt í samræðum

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • njóta ljóða lesturs og leikrita
  • tjá sig í hópi og virða skoðanir annarra
  • meta og bera saman ólík verk
Getum við bætt efni síðunnar?