Fara í efni

ÍSLE1GG02Z - Íslenska með áherslu á goðafræði

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með færniþættina fjóra; tjáningu, læsi, hlustun og ritun. Heimur goðafræðinnar (norrænn, grískur og/eða rómverskur) er kynntur í máli og myndum ásamt kynningu á mismunandi sagnaformum. Fjölbreytt verkefni unnin.

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu goðum og sögu þeirra
  • að aðrir menningarheimar eigi sín goð
  • helstu goðum og sérkennum þeirra með hliðsjón af nútíma ofurhetjum
  • muninum á goðsögum, ævintýrum og þjóðsögum

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • þekkja helstu goð og söguna á bakvið þau
  • skapa sitt eigið goð/ofurhetju með sögu og sérkennum
  • leita upplýsinga á ólíku formi (net, bækur, annað) 

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • njóta þeirra sagnfræðilegu verðmæta sem liggja í goðafræði
  • geta miðlað eigin skoðunum og vitneskju á fjölbreyttan hátt 
  • sjá tengslin milli nútíma ofurhetja og þekktra goða
  • gera sér grein fyrir hvort um goðsögu eða annars konar sagnaform er að ræða
Getum við bætt efni síðunnar?