Fara í efni

ÍSLE1FT04S - Fjölmiðlar og tækni

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Fjölmiðlar, gervigreind, hjálparforrit og fleira er uppistaða námsefnis í áfanganum. Unnið er með fjölbreytt málefni líðandi stundar í ýmsu samhengi. Stuðst er við fjölmiðla, gervigreind, samfélagsmiðla, hjálparforrit og fleira. Fréttir og málefni líðandi stundar skoðuð með gagnrýnum hætti. Lögð er áhersla á að meta trúverðugleika upplýsinga og verndun persónuupplýsinga ásamt öruggri netnotkun. Fræðsla um hvernig góð samskipti í hópi og á netmiðlum geta farið fram og nemendur þjálfaðir í að tjá skoðanir sínar í ræðu og riti.

 

Markmið:

 

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • málefnum líðandi stundar á eigin forsendum
  • forritum og öðru sem aðstoðað geta við nám
  • ólíkum gerðum fjölmiðla
  • samskiptum í hópi og á samfélagsmiðlum

 

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nýta sér og njóta þeirra fjölmiðla sem henta honum best
  • nota forrit/hjálparsíður til náms
  • tjá sig um málefni líðandi stundar
  • geti beitt gagnrýnni hugsun við notkun fjölmiðla og annarra netmiðla

 

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • fylgjast með því sem er í umræðunni hverju sinni
  • nýta sér t.d. gervigreind til náms
  • tjá skoðanir sínar í ræðu og riti
  • geti lagt mat á trúverðugleika upplýsinga
Getum við bætt efni síðunnar?