Fara í efni

ÍSLE1ÁT04S - Íslenska með áherslu á ritun og framsögn á fjölbreyttu formi

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Megináhersla áfangans er að vinna með alla þætti íslenskunnar með sérstaka áherslu á ritun og framsögn. Áhersla er á að efla þekkingu, leikni og færni nemenda í notkun ólíkra tjáskiptaleiða og með ólíkum miðlum. Farið verður í fjölbreytt viðfangsefni og tengt verður við áhugasvið nemenda. Megin áhersla verður á að nemendur viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem þeir búa nú þegar að.

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ólíkum leiðum til samskipta og tjáningar
  • uppbyggingu og framsetningu ólíkra texta
  • mikilvægi þess að láta skoðanir sínar í ljós og bera virðingu fyrir skoðunum annarra

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • setja fram stutta og skýra texta
  • að taka þátt í umræðum og hlusta á sjónarmið annarra af virðingu
  • láta skoðanir sínar í ljós og rökstyðja þær
  • að nota ólíkar leiðir til tjáningar

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • tjá sig í hóp og virða skoðanir annarra
  • leitast við að tileinka sér gagnrýna hugsun (spyrja spurninga) í upplýsingaöflun og tjáningu
  • geta rökstutt eigin skoðanir
Getum við bætt efni síðunnar?