ÍSLE1ÁS04S - Áhersla á sakamálasögur
Lýsing
Í áfanganum er unnið markvisst með alla fjóra færniþætti íslenskunáms; tjáningu, læsi, hlustun og ritun, með sérstaka áherslu á sakamálasögur og skyldar bókmenntagreinar. Nemendur lesa og vinna með aldursmiðaðar bókmenntir á fjölbreyttan hátt og kynnast helstu einkennum sakamálasagna, svo sem spennuuppbyggingu, persónusköpun, sögusviði og framvindu. Jafnframt eru aðrar bókmenntagreinar, til dæmis smásögur og ástarsögur, nýttar til samanburðar til að efla skilning á formi, stíl og efni ólíkra texta. Áhersla er lögð á að auka orðaforða, lesskilning og hæfni nemenda til að lesa sér til gagns og ánægju, túlka texta og ræða efni þeirra af öryggi. Nemendur vinna einnig með skapandi og greinandi verkefni þar sem þeir tjá skoðanir sínar, draga ályktanir, endursegja efni og semja eigin texta út frá lestri. Áfanginn styður við sjálfstæð vinnubrögð, málþroska og virka þátttöku í bókmenntaumræðu.
Markmið
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- innihaldi, söguþræði og meginþemum sagna sem unnið er með
- þeim heimi, aðstæðum og mannlegu samskiptum sem birtast í lestri og hlustun skáldsagna
- ólíkum bókmenntagreinum og helstu einkennum þeirra
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja sér skáldsögu eða texta sem hentar áhugasviði og lestrargetu
- lesa og hlusta á mismunandi texta sér til gagns, skilnings og ánægju
- greina söguþráð, hápunkta og framvindu í verkum sem tekin eru fyrir
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- njóta lesturs og hlustunar á bókmenntir á virkan og meðvitaðan hátt
- spyrja spurninga, tjá skoðanir sínar og hlusta á sjónarmið annarra
- leita nýrra fanga í bókmenntum, tengja efni þeirra við eigið líf og setja í samhengi