Fara í efni

ÍSLE1ÁL04S - Áhersla á íslensk dægurlög og textagerð

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið markvisst með alla fjóra færniþætti íslenskunáms; tjáningu, læsi, hlustun og ritun, með íslenska dægurtónlist og textagerð að leiðarljósi. Nemendur kynnast fjölbreyttum íslenskum dægurlögum, ólíkum tónlistarstefnum og helstu listamönnum, bæði eldri og nýrri, og skoða hvernig tónlist og textar endurspegla samfélag, tilfinningar og menningu. Áhersla er lögð á að efla skilning nemenda á máli, orðaforða, boðskap og uppbyggingu texta með virkri hlustun, umræðum og greiningu á söngtextum. Jafnframt fá nemendur tækifæri til að tjá eigin skoðanir, bera saman ólíka texta og vinna skapandi verkefni þar sem þeir semja eigin texta, endurvinna efni eða setja fram túlkun á lögum og textum. Áfanginn miðar að því að efla málþroska, gagnrýna hugsun, sköpunargleði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • innihaldi, boðskap og tjáningarformi lagatexta
  • algengri uppbyggingu lagatexta og helstu sérkennum þeirra
  • þekktu íslensku tónlistarfólki, helstu verkum þess og áhrifum á íslenska tónlistarmenningu
  • helstu straumum og stefnum í íslenskri dægurlagamenningu

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • hlusta með markvissum hætti eftir innihaldi, boðskap og stílbrögðum í dægurlagatextum
  • greina mun á ólíkum tónlistarstefnum og bera saman helstu einkenni þeirra
  • þekkja þekkt íslensk lög, flokka þau eftir tónlistarstefnum og færa rök fyrir flokkun sinni

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • njóta íslenskrar dægurlagamenningar á meðvitaðan og virkan hátt
  • gera grein fyrir hvaða tónlist höfðar helst til hans og rökstyðja afstöðu sína
  • hlusta á tónlist með gagnrýnum og greinandi hætti
Getum við bætt efni síðunnar?