ÍSLE1ÁB04S - Áhersla á goðafræði, íslensk og önnur
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum er unnið með alla þætti íslenskunnar, einkum læsi, hlustun og tjáningu. Lögð er áhersla á umfjöllun og kynningu á norrænni goðafræði og goðafræði annarra menningarheima. Farið verður í fjölbreytt viðfangsefni og áhersla verður á að nemendur viðhaldi og byggi ofan á grunn sem þeir hafa nú þegar.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnatriðum í norrænni goðafræði
- goðafræði ólíkra heimshluta
- mikilvægi þess að láta skoðanir sínar í ljós og bera virðingu fyrir skoðunum annarra
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- setja fram stutta og skýra texta
- að taka þátt í umræðum og hlusta á sjónarmið annarra af virðingu
- leita upplýsinga á ólíku formi (net, bækur, annað)
- skilja og meðtaka upplýsingar úr textum og öðrum upplýsingagjöfum
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig í hóp og virða skoðanir annarra
- geta miðlað eigin skoðunum og vitneskju á ólíkan hátt
- leitast við að tileinka sér gagnrýna hugsun (spyrja spurninga) í upplýsingaöflun og tjáningu