Fara í efni

HREY1ÚT01 - Útivist

Í boði : Alltaf

Lýsing

Í áfanganum er verið að kynna útivist og hvernig hún nýtist við líkamsþjálfun. Kynnt verða fjölbreytt form útivistar eins og göngu- og hjólaferðir, skíði og fleira. Farið yfir leiðir, eðli hreyfingar og útbúnað sem er mikilvægur fyrir útivist. Í áfanganum er megináhersla lögð á að nemendur fái tilfinningu fyrir áhrifum hreyfingar á líðan sína, andlega og líkamlega. Farið er í gegnum æfingar sem þjálfa upp styrk og þol.

Einingar 1

Þekkingarviðmið

  • hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
  • hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
  • mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
  • æskilegum aðferðum til þjálfunar líkamans

Leikniviðmið

  • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta
  • stunda fjölbreytta útivist og hreyfingu

Hæfniviðmið

  • viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu
Getum við bætt efni síðunnar?