Fara í efni

HREY1ÞS01Z - Íþróttir með áherslu á þol og styrk

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfanginn miðar að því að nemendur auki þol sitt, styrk og liðleika við ýmsar æfingar á mismunandi stöðvum. Leitast verður við að æfingar hæfi getu og áhuga hvers og eins.

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi hreyfingar
  • mikilvægi þess að auka þol og styrk
  • hvaða leiðir eru til þess að auka þol og styrk

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • meta þol sitt styrk og liðleika
  • nýta ólíkar leiðir til að auka styrk og liðleika

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bæta þol, styrk og liðleika með ýmsum æfingum
  • njóta hreyfingar í öruggu umhverfi
Getum við bætt efni síðunnar?