Fara í efni

HREY1ST01S - Íþróttir með áherslu á stöðvaþjálfun

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Áfanginn er verklegur og fer fram í íþróttasal (M11) eða utandyra. Áhersla er lögð á grunnþættina þol, styrk og liðleika og nemendur gera ýmsar æfingar á stöðvum sem auka þessa þætti. Leitast verður við að æfingar hæfi getur og áhuga hvers og eins. Farið verður í æfingar til að bæta líkamsstyrk, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd.

 

Markmið:

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • að hreyfing er holl og góð fyrir líkamann
  • að fara ekki of geyst af stað
  • þeim hættum sem geta leynst í tækjasal
  • mikilvægi þess að gera æfingar rétt til þess að forðast meiðsli og hámarka árangur
  • helstu æfingum og hvaða vöðvahóp þær eru að þjálfa

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota fjölbreytt líkamsræktartæki
  • gera fjölbreyttar æfingar
  • nota eigin þyngd jafnt og lóð í æfingum
  • teygja eftir æfingar og auka liðleika

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér styrktarþjálfun sem valkost í hreyfingu
  • bæta líkamsástand sitt
  • sækja tíma í líkamsræktarstöðvum og nýta sér þjónustu þeirra
  • fara eftir reglum líkamsræktarsal
  • gera reglulega hreyfingu hluta af sínu lífi
Getum við bætt efni síðunnar?