HREY1LE01Z - Íþróttir með áherslu á leiki og styrk
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfanginn miðar að því að nemendur njóti fjölbreyttrar hreyfingar í margvíslegum leikjum. Unnið er með styrkleika nemenda sem og að efla skynþroska, samvinnu og félagsfærni.
Markmið:
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- eigin leikni og færni við leik og störf
- mikilvægi upphitunar, styrktar- og liðleikaþjálfunar
- æfingum sem bæta líkamsstöðu
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- hafa gaman af því að hreyfa sig
- auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
- stunda æfingar og hreyfingu sem stuðlar að bættri líkamsbeitingu
- stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
- nota samvinnu til að stuðla að tillitssemi og hvatningu
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta leiki til félagslegra samskipta og samvinnu
- styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru
- skilja gildi samvinnu í leik og keppni
- sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf
- nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í þjálfun