Fara í efni

HREY1LB01Z - Íþróttir með áherslu á líkamsbeitingu

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfanganum er ætlað að auka þekkingu nemenda á réttri líkamsbeitingu og jafnvægi líkama og hugar, jafnt við æfingar og dagleg störf.Unnið verður að þessu með hefðbundnum styrktar-,úthalds- og liðleikaæfingum auk slökunaræfinga og leikja.

Markmið:

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • æfingum sem bæta líkamsstöðu
  • eigin leikni og færni við leik og störf
  • mikilvægi upphitunar, styrktar- og liðleikaþjálfunar
  • mikilvægi hreyfingar fyrir líkama og sál

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • stunda æfingar og hreyfingu sem stuðlar að bættri líkamsbeitingu
  • stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
  • finna hvað það skiptir miklu máli að geta róað huga og líkama

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í þjálfun
  • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru
  • Að ná að átta sig á hvernig hægt er að róa hugann og líkamann með rólegum æfingum
Getum við bætt efni síðunnar?