HREY1GV01S - Íþróttir með áherslu á grunnþjálfun
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Í áfanganum fær nemandinn leiðsögn við að framkvæma æfingar sem styrkja líkamann. Nemandinn kynnist teygjuæfingum, göngu, stöðvaþjálfun o.fl.. Lögð er áhersla á að nemandinn finni æfingar við sitt hæfi, njóti þess að stunda æfingar og finni fyrir jákvæðum áhrifum á heilsu sína.
Markmið:
Þekkingarviðmið
Nemendi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi þess að stunda æfingar
- að vellíðan getur fylgt æfingum
- að hægt er að njóta æfinga
Leikniviðmið
Nemandi skal öðlast leikni í:
- gera einfaldar teygjuæfingar
- ganga sér til heilsubótar
- gera æfingar í stöðvaþjálfun
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- taka þátt í æfingum sem henta eða benda á hvaða æfingar henta honum
- nýta sér ýmis tilboð á sviði hreyfingar s.s. sund, gönguferðir og stöðvaþjálfun
- stunda æfingar í vatni