Fara í efni

HREY1AG01Z - Íþróttir með áherslu á almenna grunnþjálfun

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er leitast við að hvetja nemandann til heilbrigðari lífshátta. Lögð verður áhersla á fjölbreytta líkamsþjálfun þar sem unnið er markvisst að því að nemandi finni hreyfingu við sitt hæfi út frá getu og áhuga. Unnið er að því að nemendur öðlist færni í að stunda eigin þjálfun auk þess sem farið er í Grunnatriði réttrar líkamsbeitingar. Þá eru sköpuð tækifæri til að spreyta sig á fjölbreyttum aðferðum til þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar. 

Markmið:

Þekkingarviðmið  

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:  

  • mikilvægi upphitunar, úthalds- styrktar- og liðleikaþjálfunar  
  • leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt í daglegum athöfnum 
  • æfingum sem bæta líkamsstöðu  
  • fjölbreyttum aðferðum til heilsuræktar  

Leikniviðmið  

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:  

  • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum  
  • stunda æfingar og hreyfingu sem stuðlar að bættri líkamsbeitingu  
  • stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar  
  • nota samvinnu til að stuðla að tillitssemi og hvatningu  
  • nota heilsulæsi til að efla og viðhalda góðri andlegri og líkamlegri heilsu  

Hæfniviðmið  

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru  
  • skilja gildi samvinnu í leik og keppni  
  • sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf  
  • glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt.  
  • nýta nánasta umhverfi sitt og náttúru til heilsuræktar  
  • nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í þjálfun 
Getum við bætt efni síðunnar?