HREV4AO05 - Bilanagreining brunahreyfla
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Fjallað er um mismunandi gerðir bilana í hreyflum. Farið er yfir skipulag og framkvæmd bilanagreininga. Unnin eru verkefni í skipulagi og framkvæmd bilanagreininga á hreyflum. Áhersla er á nákvæmt skipulag, notkun mælitækja, mat á niðurstöðum mælinga og notkun tækniupplýsinga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Mikilvægi skiplags við bilanagreiningar.
- Gerð skipulags fyrir bilanagreiningu.
- Notkun mælitækja við bilanagreiningar.
- Niðurstöðum mælinga á hreyflum, raf- og vélbúnaði.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Útskýra mikilvægi skipulags bilanagreininga.
- Framkvæma bilanagreiningar á hreyflum, raf- og vélbúnaði á skipulagðan hátt.
- Nota viðeigandi mælitæki og tækniupplýsingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Framkvæma bilanagreiningar á hreyflum, raf- og vélbúnaði á skipulagðan hátt.
- Framkvæma öruggar og hagkvæmar viðgerðir á hreyflum, raf- og vélbúnaði.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.