HREV3BO05 - Stjórnbúnaður brunahreyfla
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Farið er yfir uppbyggingu og virkni stjórnbúnaðar brunahreyfla, eins og tímafærslubúnaðar (ventlatíma), kveikikerfis og eldsneytiskerfis. Farið yfir virkni skynjara og hreyfiliða í stjórnkerfum hreyfla. Farið yfir virkni stjórnkorts í vélartölvu. Unnin eru verkefni í mælingum á merkjum skynjara og hreyfiliða og mati á niðurstöðum mælinga. Áhersla á notkun mælitækja og tækniupplýsinga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Virkni tímafærslubúnaðar.
- Virkni kveikikerfa og eldsneytiskerfa.
- Virkni stjórnbúnaðar ventla.
- Uppbyggingu og virkni stjórnkorts í stjórntölvu hreyfla.
- Virkni skynjara og hreyfiliða í stjórnbúnaði hreyfla.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Mæla skynjara og hreyfiliði.
- Nota viðeigandi mæli- og greiningatæki.
- Nota viðeigandi tækniupplýsingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Mæla virkni skynjara og hreyfiliða í stjórnbúnaði hreyfla.
- Útskýra uppbyggingu og virkni stjórnbúnaðar hreyfla.
- Nota viðeigandi mæli- og greiningartæki, tækniupplýsingar og túlka niðurstöður mælinga.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.