HREV2AO05 - Uppbygging og virkni brunahreyfla
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Farið er yfir virkni og flokkun ýmissa hreyfla. Farið er yfir heiti og hlutverk íhluta. Áhersla lögð á blokk, hedd, stimpla, sveifarás og knastás. Farið yfir vinnureglu ýmissa hreyfla, tímafærslubúnað og ventlatíma. Farið yfir legur og þéttingar. Áhersla á rétta notkun verkfæra, mælitækja og tækniupplýsinga við viðgerðir hreyfla. Einnig farið yfir mikilvægi hreinlætis þegar unnið er við hreyfla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Helstu íhlutum og grunnvirkni ýmissa gerða hreyfla.
- Vinnureglu og byggingarlagi hreyfla.
- Tímafærslubúnaði.
- Kælikerfi.
- Smurkerfi.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Nota viðeigandi verkfæri og mælitæki.
- Taka í sundur, mæla og setja saman hreyfil.
- Framkvæma þjöppumælingu.
- Nota viðeigandi tækniupplýsingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Taka í sundur og setja saman hreyfil samkvæmt upplýsingum framleiðanda.
- Nefna íhluti og hlutverk þeirra.
- Útskýra virkni hreyfla.
- Nota viðeigandi verkfæri og mælitæki.
Símat. Verkefni sem tengjast hæfniviðmiðum áfangans verða lögð fyrir og metin.