HÖTE3ST05 - Sniðteikning, fatasaumur
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn lærir að hanna og sauma flíkur, kynnist sníðagerð og saumtækniatriðum. Nemandinn þjálfast í útreikningi á efnismagni og skipulagi við að leggja snið á efni. Nemandinn lærir að teikna grunnsnið og nota þau til að vinna flóknari sniðútfærslur í einum fjórða mælikvarða til yfirfærslu í raunstærð. Nemandinn þjálfast í skipulögðu vinnuferli og mátun sniða með saumi á prufuflíkum og leiðréttingu sniða eftir mátun. Nemandinn öðlast færni í að vinna og þróa eigin hugmyndir í fatagerð.
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- grunnhugtökum sniðagerðar
- hvaða vefjarefni henta í mismunandi flíkum
- uppbyggingu grunnsniða með tilheyrandi hreyfivídd
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skissa hugmyndir, teikna tískuteikningar og flatar vinnuteikningar
- útfæra snið eftir eigin teikningum í smærri mælikvarða og yfirfæra í raunstærð
- teikna snið af mismunandi flíkum
- reikna út efnismagn fyrir flíkur samkvæmt sniðum
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Þróa eigin hugmyndir á sjálfstæðan hátt með rannsóknar- og skissuvinnu fyrir sníðagerð
- Nýta grunnsnið og gera á þeim breytingar til samræmis við eigin hugmyndir
- Meta hvaða vefjarefni hentar í tengslum við notagildi
- Ígrunda og ræða um verk sín og vinnuferli í samvinnu við kennara og samnemendur og setja eigin verk fram til kynningar með skýrum hætti