Fara í efni

HÖTE3BT05 - Yfirborðshönnun

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn lærir undirstöðuatriði í bútasaumi og frjálsri útsaumstækni, bæði hand- og vélsaumi. Með fjölbreyttum efnum og aðferðum umbreytir hann yfirborði vefjarefna með tilraunum og prufugerð. Nemandinn þjálfast í hugmynda- og skissuvinnu í tengslum við yfirborðshönnun og eykur getu sína til þess að meta samhengi milli hugmynda, hráefnis, tækni, listrænnar sköpunar og notagildis. Þá kynnist nemandinn verkum listamanna og hönnuða sem vinna með búta- og/eða útsaum. Nemandinn temur sér skapandi, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð. Hann ígrundar verk sín í samvinnu við kennara og samnemendur, skrásetur vinnuferli sitt og , setur það fram með skipulögðum hætti.

 

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • grunnhugtökumog saumtækniatriðum sem tengjast búta- og útsaumi
  • hvernigbútasaumur og frjáls útsaumur er notaður bæði á hagnýtan og listrænan hátt
  • fjölbreyttummöguleikum sem felast í búta- og útsaumi til umbreytingar yfirborðs vefjarefna

 

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinnafrjálsan útsaum bæði í saumavél og í höndunum
  • vinnabútasaum með fjölbreyttum aðferðum
  • Notasaumavélar og önnur áhöld sem nýtt eru við búta- og útsaum auk þess að geta metið og nýtt sér viðeigandi stillingar, fætur og nálar eins og við á hverju sinni
  • Vinnaeftir ferli, þar sem eitt vinnslustig tekur við af öðru, að loka niðurstöðu

 

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Þróaeigin hugmyndir á sjálfstæðan hátt með rannsóknar- og skissuvinnu.
  • Veljaefni og aðferðir í tengslum við eigin hugmyndir og geta rökstutt ákvarðanir með tilliti til faglegrar þekkingar.
  • Nýtaumhverfi sitt, fjölbreyttar kveikjur og verk listamanna og hönnuða sem innblástur fyrir eigin verk.
  • Ígrundaog ræða um verk sín og vinnuferli í samvinnu við kennara og samnemendur og setja verk sín fram til kynningar á skýran hátt.
Getum við bætt efni síðunnar?