Fara í efni

HÖTE2PH05 - Prjón og hekl

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn lærir grunnatriði prjóns og hekls og eykur við færni sína í prjóni og hekli með prufugerð. Nemandinn lærir að lesa og fara eftir uppskriftum auk þess að læra að beita þeim áhöldum sem notuð eru við prjón og hekl. Nemandinn lærir jafnframt að þekkja helstu vefjarefni sem notuð eru við framleiðslu á garni og hvað þarf að hafa í huga þegar garn er valið. Lögð er áhersla á að nemandinn skilji vinnuferli sem þarf að fylgja við prjón og hekl, læri hvernig gengið er frá prjónuðum og hekluðum stykkjum og þau fullkláruð.

 

Þekkingarviðmið

Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Grunnhugtökum sem tengjast prjóni og hekli
  • Helstu aðferðum sem notaðar eru við prjón oghekl
  • Helstu áhöldum sem tengjast prjóni og hekli
  • Ólíkum eiginleikum vefjarefna
  • Hvernig nýta má efni af netinu sér til stuðnings í prjóni og hekli

 

Leikniviðmið

Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

  • Prjóna og hekla einföld stykki eftir uppskrift, bæði á íslensku og ensku
  • Beita helstu grunnaðferðum prjóns oghekls
  • Ganga frá og fullklára prjónuð og hekluð stykki

 

Hæfniviðmið

Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Nýta vinnuleiðbeiningar í máli og myndum til að prjóna og hekla
  • Meta hvaða vefjarefni hentar í tengslum við notagildi og útlit sem óskað er eftir
  • Nýta aðferðir prjóns ogheklsá sjálfstæðan og skapandi hátt
Getum við bætt efni síðunnar?