HKLI2GB03C - Hársnyrting 3
Undanfari : HKLI2GB03B
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn fær þjálfun í að blanda saman mismunandi formum við klippingu á dömu og herra æfingahöfðum og á módelum. Þekking og beiting mismunandi aðferða við þynningu er aukin, einnig notkun klippivéla. Nemandinn lærir að greina klippingar út frá myndum og gera verklýsingar fyrir þær. Í áfanganum er lögð rík áhersla á gerð og nýtingu verklýsinga við klippingar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- flestum hugtökum sem tengjast klippingum.
- formi klippinga út frá myndum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- klippa snöggt með vél og skærum.
- þynna hár með hníf og þynningarskærum.
- klippa formklippingu á æfingahöfði og módeli samkvæmt kennslukerfi.
- klippa dömu- og herraklippingar samkvæmt eigin verklýsingu á æfingahöfði og módeli.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- klippa eftir fyrirmynd.
- sjá út form klippinga eftir myndum.
- gera verklýsingu fyrir klippingu sem aðrir geta farið eftir.
- geta þynnt niður í hnakka með vél og ólíkum kömbum.
- geta séð fyrir sér lokaútkomu á klippingu með tilliti til andlitsfalls og hárgerðar.
Símat.