Fara í efni

HKLI2GB03B - Hársnyrting 2

Undanfari : HKLI1GB03A
Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn fær þjálfun í klippingum á æfingahöfði, öðlast grunnþekkingu á formklippingu (herra) og aukna þekkingu á jafnsíðu formi, fláa, auknum styttum, jöfnum styttum og þynningu. Kynnt er vinna með klippivélum með mismunandi kömbum og mismunandi aðferðir við þynningu í hári. Nemandinn dýpkar skilning sinn og færni í gerð verklýsinga og nýtingu þeirra.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • ýmsum hugtökum sem tengjast klippingum.
  • notkun og umhirðu klippivéla.
  • notkun og gerð verklýsinga.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • klippa hnakka og hliðartopp snöggt með vél og skærum.
  • klippa formklippingu á æfingahöfði samkvæmt kennslukerfi.
  • klippa dömu- og herraklippingar samkvæmt verklýsingu á æfingahöfði.
  • gera verklýsingar fyrir dömu og herraklippingar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivél með skiptanlegum kömbum.
  • gera verklýsingar.
  • geta séð fyrir sér form í klippingum.
Símat.
Getum við bætt efni síðunnar?