HKLI1GB03A - Hársnyrting 1
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn kynnist grunnatriðum kennslukerfis hársnyrtinámsins við klippingu á æfingahöfði og tileinkar sér helstu hugtök. Áhersla er lögð á að horfa og hugsa eins og hönnuður, að þekkja helstu hönnunarþættina og grunnformin fjögur sem notuð eru við klippingu: jafnsítt form, fláa, auknar og jafnar styttur. Nemandinn kynnist mikilvægi smitvarna og helstu öryggisþátta. Hann fær að auki grunnþjálfun í gerð og notkun verklýsinga og í meðferð og beitingu áhalda og tækni við klippingu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- því kennslukerfi sem unnið er eftir og hvernig það er notað við hönnun og framkvæmd klippinga.
- hugtökunum hverfipunktur, jafnsítt, flái, auknar og jafnar styttur og þeim hárformum sem hugtökin tákna.
- helstu áhöldum sem notuð eru við klippingar.
- helstu smitleiðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- klippa æfingahöfuð dömu og herra, einnig vanga og hnakkatopp í jafnsítt form, auknar og jafnar styttur auk fláa.
- gera verklýsingu fyrir klippingu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- hafa gott vald á greiðu, skærum og þynningarskærum og á samspili blásara, bursta og greiðu.
- sjá samhengi í verklýsingu og því verki sem hún stendur fyrir.
- þekkja ólík form í hársnyrtingu og hafa vald á aðferðum til að ná þeim fram.
Símat.