HHER3FB03B - Herraklipping 2
Undanfari : HHER2FB03A
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn samþættir kunnáttu og færni frá fyrri stigum námsins. Hann eflir fagmennsku og sjálfstæði í vinnubrögðum við herraklippingar þannig að útkoman hæfi viðskiptavini hverju sinni. Einnig lærir hann að ráðleggja um val á mótunarvörum við hæfi. Efld er þekking á verklýsingum og að vinna eftir verklýsingum annarra. Verkefnin eru unnin á módelum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mismunandi tískulínum og útfærslum þeirra.
- hinum ýmsu vörum sem notaðar eru til hármótunar og frágangs.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- klippa herraklippingu/tískulínur á módeli út frá eigin verklýsingu.
- klippa módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið.
- vinna eftir verklýsingum annarra.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivél með skiptanlegum kömbum.
- ráðleggja um form á klippingum með hliðsjón af líffræðilegum þáttum.
- beita fjölbreyttum aðferðum og tækni við klippingu og þynningu.
- vinna eftir verklýsingu.
- ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
Símat.