Fara í efni

HHER2FB03A - Herraklipping 1

Undanfari : HKLI2GB03C
Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn fær þjálfun í herraklippingum á æfingarhöfði og módeli. Lögð er áhersla á form-, tísku- og snöggar herraklippingar og notkun hármótunarefna. Unnið er með klippivélum með mismunandi kömbum, þjálfuð færni í að eyða út hnakkalínu með greiðu og skærum og farið í þynningu með skærum og hníf. Verkefnin eru unnin á æfingahöfði og módelum.

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • ýmsum hugtökum sem tengjast klippingum.
  • mismunandi formum í herraklippingum.
  • notkun hármótunarvara.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
  • klippa snöggt með vél og skærum.
  • þynna hár með hníf og þynningarskærum.
  • klippa formklippingu á æfingarhöfði og módeli út frá verklýsingu.
  • klippa herraklippingu (enskt form) samkvæmt verklýsingu á æfingahöfði og módeli.
  • klippa módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
  • beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivél með skiptanlegum kömbum.
  • klippa módel samkvæmt óskum þess.
  • klippa snögga herraklippingu sem þynnist niður í hnakka.
  • klippa formklippingu.
  • vinna út frá verklýsingu.
  • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
Símat.
Getum við bætt efni síðunnar?