Fara í efni

HEIL1ST02S - Lýðheilsa með áherslu á stöðvaþjálfun

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Áfanginn er að mestu verklegur og fer fram í íþróttasal VMA eða utandyra. Í áfanganum er megináhersla lögð á að nemendur fái tilfinningu fyrir áhrifum hreyfingar á líðan sína, andlega og líkamlega.  Farið er í gegnum æfingar í stöðvarþjálfunarformi sem þjálfa upp styrk, þol og liðleika og eiga nemendur að taka virkan þátt í æfingunum.  Leitast verður við að æfingar hæfi getu og áhuga hvers og eins.

Markmið:

Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • Að hreyfing er holl og góð fyrir líkamann 
  • Að fara ekki of geyst af stað 
  • Að þekkja hættur sem geta leynst í tækjasal 

 Leikniviðmið Nemandi skal öðlast leikni í:

  • Stunda fjölbreyttar styrktaræfingar með líkamsþyngd 
  • Stunda fjölbreyttar styrktaræfingar í tækjum
  • Stunda líkams- og heilsurækt á eigin vegu 

 Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Nýta sér styrktarþjálfun sem valkost í hreyfingu  - Taka þátt og fylgja reglum  
  • Tileinka sér þætti sem snúa að hópasamvinnu
  • Stunda líkamsrækt í nánasta umhverfi 
  • Bæta líkamsástand sitt 
Getum við bætt efni síðunnar?