HEHA1DR02S - Daglegur heimilisrekstur
Í boði
: Haust
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Í áfanganum verður lögð áhersla á þau fjölmörgu verkefni og skyldur sem nemendur standa frammi fyrir í dag og lúta að sjálfstæðri búsetu. Fjallað verður um hvað þýðir að vera ábyrgur neytandi í nútíma samfélagi og hvernig það endurspeglast í daglegu lífi. Hvernig hegðun okkar og venjur geta dregið úr óþarfa neyslu, matarsóun og aukið almenna nýtni. Nemendur kynnast helstu heimilisstörfum, skipulagi heimilishalds, mikilvægi viðhalds og öryggis á heimili. Þeir framkvæma verðkönnun, áætlun um matarinnkaup og einfalt heimilisbókhald. Nemendur leysa verkefnin á sjálfstæðan hátt og í samvinnu við aðra.
Markmið
Nemandi öðlast þekkingu og skilning á:
- hvað það þýðir að vera ábyrgur þátttakandi og neytandi í lýðræðissamfélagi
- helstu skyldum og störfum sem felast í sjálfstæðri búsetu
- jákvæðum og neikvæðum áhrifum neysluhegðunar
- margvíslegum verkefnum sem fylgja heimilishaldi
- gagnsemi þess að skipuleggja heimilisstörf, matarinnkaup og heimilisbókhald
- helstu slysahættum og mikilvægi öryggis á eigin heimili
Nemandi öðlast leikni í að:
- sinna almennum heimilisstörfum
- sinna nauðsynlegu viðhaldi eins og kostur er
- halda heimilisbókhald og gera áætlanir um innkaup meðsparsemií huga
- temja sér almenna nýtni og koma í veg fyrir matarsóun
- meta hættur á heimili og þekkja varnir sem tryggja öryggi
Nemandi nýtir almennu þekkingu sína og leikni til að:
- skipuleggja og sinna heimilisstörfum og viðhaldi á heimili
- sjá um innkaup á hagnýtan hátt
- minnka matarsóun og stuðla að nýtni í sjálfstæðri búsetu
- minnka áhættu á slysum á heimili sínu
- njóta líðandi stundar sem ábyrgur neytandi í sátt við umhverfi sitt