Fara í efni

HEFR1HO02S - Heimilisfræði með áherslu á hollustu og velferð

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Í áfanganum er sérstaklega litið á heilbrigði og velferð, sjálfbærni og skapandi starf. Áhersla er lögð á hollustu, fjölbreytt fæðuval, samsetningu fæðutegunda, fæðuhringinn, nýtingu hráefna, sparnað, endurvinnslu og velferð nemenda í daglegu lífi. Nemendur leysa verkefnin á sjálfstæðan hátt en einnig í samvinnu við aðra. Að auki munu verkefnin tengjast hollustu, hagkvæmni og hagnýtingu. Þessi áfangi er keyrður samhliða áfanganum LÍFF0NF01.

Markmið:

Þekkingarviðmið  

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:  

  • að lesa úr mismunandi uppskriftum  
  • mikilvægi hollrar næringar og á fjölbreyttu fæðuvali  
  • mikilvægi sjálfbærni í daglegu lífi  
  • fæðuhringnum og samsetningu fæðunnar  
  • sjálfstæðum vinnubrögðum, samvinnu og verkaskiptingu  
  • hreinlæti og frágangi við matargerð, sparnaði og sóun  

 

Leikniviðmið  

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:  

  • taka til viðeigandi hráefni  
  • lesa utan á umbúðir, sjá hvaða hráefni er í vörunni og úr hvaða fæðuflokkum  
  • viðhafa viðeigandi hreinlæti við matargerð  
  • skoða eigin neysluvenjur  
  • flokka umbúðir og afganga á réttan hátt  
  • nota viðeigandi búnað og hlífðarfatnað við eldhússtörf  
  • breyta uppskriftum til að gera þær hollari og prófa þær  
  • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra nemendur  

 

Hæfniviðmið  

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • lesa og nýta sér mismunandi uppskriftir og vinna eftir þeim  
  • gera sér grein fyrir hvaðan hráefnið kemur, hvernig það er unnið og hvernig hægt er að nýta það á sem hagkvæman hátt með sjálfbærni í huga  
  • verða meðvitaðir um hollustu þess sem þeir neyta og áhrif þess á líkamann  
  • sýna hver öðrum virðingu, umburðarlyndi og vera fær um ýmis konar samvinnu  
  • nýta eigin hæfileika og frumkvæði í að skapa úr mismunandi hráefni með viðeigandi áhöldum og heimilistækjum  
  • skipuleggja flokkun og endurvinnslu á eigin heimili  
Getum við bætt efni síðunnar?