Fara í efni

HEFR1HL02Z - Heimilisfræði með áherslu á hollustu og lífsstíl

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Útbúnir verða réttir þar sem lögð er áhersla á hollustu, fjölbreytt fæðuval, og samsetningu fæðutegunda. Farið er yfir það hvaða áhöld og tæki eru nauðsynleg við matseld sem og öryggisþætti í eldhúsi. 

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hvað einkennir hollt og fjölbreytt mataræði
  • hollustu þess sem þeir neyta og áhrif þess á líkamann
  • hvaðan hráefnið kemur, hvernig það er unnið og hvernig hægt er að nýta það sem best.
  • að fara eftir einföldum sjónrænum uppskriftum og nýta viðeigandi áhöld

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina á milli óhollustu/hollustu
  • nýta eigin hæfileika og frumkvæði í að skapa úr mismunandi hráefni
  • taka þátt í eldamennsku

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • elda hollan og fjölbreyttan mat
  • umgangast áhöld og tæki í eldhúsi af kostgæfni
Getum við bætt efni síðunnar?