HDAM2FB03A - Dömuklipping 1
Undanfari : HKLI2GB03C
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn fær þjálfun í klippingu á æfingarhöfði og módeli. Efld er þekking og færni í aðferðum og samsetningu á mismunandi klippiformum, auk þynningar og beitingar viðeigandi verkfæra. Nemandi lærir að velja viðeigandi hármótunarefni. Efldur er skilningur á gerð og notkun klippiverklýsinga.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ýmsum hugtökum sem tengjast klippingum.
- mismunandi tískuklippingum og útfærslum á þeim.
- ólíkum hármótunarefnum og áhrifum þeirra.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- klippa dömuklippingu/tískulínur á æfingarhöfði og módeli út frá eigin verklýsingu.
- klippa módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita greiðum, skærum, þynningarskærum, hnífum og klippivélum.
- ráðleggja um val og form á klippingum.
- hanna eigin klippingu.
- ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
Símat.