HBFR1PH02Z - Heilbrigðisfræði með áherslu á persónulegt hreinlæti og snyrtimennsku
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Markmið áfangans er að vinna með þá þætti sem auka færni nemandans í að taka ábyrgð á eigin líkama, hreinlæti og umhverfi. Farið er yfir það hvað telst vera snyrtimennska í líkamlegu hreinlæti en einnig fatnaði og umhverfi svo sem heimili og herbergi. Einnig verður farið yfir helstu einkenni sem skilgreina kynin, hver eru kynin, hvernig eru þau ólík og hvernig eru þau lík? Jafnrétti kynjanna er skoðað í sögulegu samhengi, hvað hefur áunnist og hvað gæti verið næst.
Markmið
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- persónulegu hreinlæti og mikilvægi þess í daglegu lífi
- hvert hægt er að leita til að fá stuðning varðandi persónulegt hreinlæti
- jafnréttishugtainu í víðum skilningi þess m.a. út frá fötlun, búsetu og kynþætti
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- þekkja helstu þætti er er varða persónulegt hreinlæti og átta sig á mikilvægi snyrtimennsku
- sinna persónulegu hreinlæti á viðeigandi hátt
- átta sig á að kyn/kynhlutverk er eitt af því sem allir skilgreina sig eftir
- hvað það þýðir að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
- átta sig á að allir eru misjafnir
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- bera sem mesta ábyrgð á eigin lífi með það að markmiði að viðhalda almennri vellíðan og heilsu
- átta sig á hvað persónulegt hreinlæti skiptir miklu máli í dags daglegu lífi
- auka víðsýni og minnka fordóma
- eiga í félagslegum samskiptum og og tala/tjá sig um tilfinningar sínar og reynslu