Fara í efni

HBFR1KS02Z - Heilbrigðisfræði með áherslu kynfræðslu, samskipti og eigin líkama

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfanginn miðar að því að fræða nemendur um kynþroska, ást og vináttu, kynlíf, kynsjúkdóma og getnaðarvarnir. Hvernig er kynhegðun skilgreind og hvað er kynferðislegt ofbeldi? Nemendur eru fræddir um jákvæð samskipti kynjanna, rétt sinn og annarra til eigin líkama og hvernig hægt er að setja sín mörk í samskiptum við aðra. Eins er farið yfir það með nemendum hvert þeir geta leitað ef þeim finnst á sér brotið. Nemendur læra að lesa í eigin tilfinningar og annarra ásamt því að skoða eigin sjálfsmynd og samskipti sín við aðra t.d. á samfélagsmiðlum.

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtakinu sjálfsmynd
  • mismunandi tilfinningum sínum og annarra
  • virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum í nánum samböndum
  • að fólk skilgreinir sig á mismunandi hátt
  • ábyrgri notkun á samfélagsmiðlum

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • átta sig á eigin líðan og sjálfsmynd
  • skilgreina eigin mörk og kynvitund
  • eiga í jákvæðum samskiptum við aðra
  • átta sig á eigin rétti og hvert hægt er að leita ef á honum er brotið
  • mismunandi samskiptaformum, s.s. samfélagsmiðlum

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • eiga í heilbrigðum samböndum 
  • ræða um eigin líðan og vera læs á eigin tilfinningar
  • skilja eigin mörk og annarra
  • virða eigin kynvitund sem og annarra
  • verða færari í samskiptum
Getum við bætt efni síðunnar?