HBFR1FL02Z - Heilbrigðisfræði með áherslu á heilbrigðan lífsstíl og forvarnir
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Í áfanganum er leitast við að styrkja nemandann sem einstakling og fræða hann um mikilvægi hreyfingar, svefns, næringar og jákvæðra samskipta. Unnið verður með sjálfsmynd og félagslega færni með áherslu á að efla færni í samskiptum og samskiptum á rafrænum miðlum. Nemendur fá fræðslu um óæskileg áhrif neyslu á vímuefnum, tóbaki og áfengi. Markmið áfangans er að efla færni nemenda til að takast á við lífið sem ábyrgir einstaklingar með eigin heilsu og velferð að leiðarljósi.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- sjálfsþekkingu og eigin styrkleikum
- að öll hegðun hefur áhrif á líðan
- mikilvægi félagslegra samskipta
- mikilvægi hreyfingar, svefns og næringar
- hversu skaðleg neysla vímuefna er
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja uppbyggilegan og jákvæðan lífsstíl
- að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
- taka ábyrgð á eigin heilsu og líðan
- eiga í jákvæðum samskipti við samferðarmenn sína
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- lifa heilbrigðu og gefandi lífi
- eiga í jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum
- að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
- vera meðvitaður um óæskileg áhrif sem vímuefni, tóbak og áfengi getur haft