HBFR1ÉG02S - Heilbrigðisfræði með áherslu á sjálfsmynd og samskipti
Lýsing
Áfanginn byggist upp á sex stoðum menntunar eins og þær koma fram í Aðalnámskrá framhaldsskóla; læsi í víðum skilningi, menntun til sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun. Fjallað verður um hugtök á borð við sjálfsmynd og sjálfsvitund, samskipti, samskiptamiðla, forvarnir, lífstíl, geðheilbrigði, fjölmenningu, víðsýni, jafnrétti kynjanna og ábyrgð okkar í samfélaginu. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun og mikilvægi þess að taka þátt í samfélagi og þeirri umræðu sem fer þar fram.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- Jafnréttishugtakinu í víðum skilningi s.s. út frá búsetu, kynþætti, fötlun, trúarbrögðum, aldri, kynhegðun o.s.frv.
- Hvað þýðir að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi og mikilvægi þess að vera þátttakandi í að skapa fordómalaust samfélag
- Áhrifum jafnréttisbaráttunnar, stöðu karla og kvenna í íslensku samfélagi fyrr og nú
- Mikilvægi þess að hlúa að sjálfum sér s.s. með almennri umhirðu líkamans, líkamsþjálfun, næringu og geðrækt
- Áhrifum góðrar sjálfsmyndar á eigið geðheilbrigði
- Sjálfum sér sem kynveru og ábyrgðinni sem því fylgir
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- Lifa heilbrigðu lífi á eigin forsendum
- Skilja eigin þarfir, muninn á réttu og röngu og geta tekið ákvarðanir í samræmi við það
- Gagnrýnni hugsun og merkingu hennar fyrir einstaklinginn
- Átta sig á að til eru mismunandi leiðir í samskiptum og samstarfi
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- Beita gagnrýnni hugsun s.s. með læsi í ýmsa miðla; fjölmiðla og netsamfélagið
- Eiga í félagslegum samskiptum og tala um tilfinningar sínar og reynslu
- Átta sig á að allir eru misjafnir og það verður að virða hvern og einn fyrir það sem hann er/stendur fyrir