HÁRG2GB02B - Hárgreiðsla og blástur 2
Undanfari : HÁRG1GB02A
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandinn þekkir nú grunnaðferðir á bak við mótun hárs með hverskonar tækjum og tólum. Unnið er áfram með þjálfun á rúlluísetningu og úrgreiðslu auk klípu- og blautbylgja í fleiri útfærslum s.s. bylgjur með hliðarskiptingu og beint aftur. Blástur er þjálfaður í dömur og herra, unnið er með ólík form og hárlengdir. Sýndar eru fléttur, snúningar og gerð hnúta í síðu hári og það útfært og æft. Áfram er unnið með notkun og gerð verklýsinga. Notast er við æfingahöfuð við verklega þjálfun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- þremur mismunandi formum á ísetningum og greiðslum, svo sem beint aftur, stjörnu- og múrsteinaupprúllum.
- viðeigandi hársnyrtiefnum og áhöldum við ísetningu og greiðslu.
- gerð og notkun verklýsinga fyrir hárgreiðslu.
- mismunandi formum á bylgjugreiðslum.
- notkun bylgjugreiðu og klípa.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skipta hárinu upp í fyrirfram ákveðnar brautir.
- setja ýmsar stærðir af rúllum í misjafna sídd af hári.
- túbera og greiða úr mismunandi upprúllum á æfingahöfðum.
- greiða fjórar blautbylgjur upp frá einni ásamt þurrkun og úrgreiðslu.
- gera klípuupprúll á æfingahöfði þannig að út komi fjórar bylgjur ásamt þurrkun og úrgreiðslu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skipta, rúlla upp og forma hár með hliðsjón af útkomu, uppbyggingu og áferð greiðslu.
- notast við verklýsingar við gerð greiðslna.
Símat.