HÁRG2FB03D - Hárgreiðsla 1
Undanfari : HÁRG2GB03C
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Nemandi þjálfast í að hanna og útfæra hárgreiðslur miðað við mismunandi hárlengdir sem hæfa viðskiptavini við ýmis tækifæri, bæði dag- og kvöldgreiðslur með hjálp verklýsinga , hitajárna og mótunarvara. Nemandinn kynnist mismunandi tímabilum í sögu hárgreiðslu og lærir að útfæra greiðslur eftir ljósmyndum auk þess sem samfélagsmiðlar eru notaðir til hugmyndarvinnu. Verkefnin unnin á æfingarhöfuð og módel.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ýmsu upprúlli og úrgreiðslum miðað við fyrirhugaða útkomu.
- mismunandi stíl og stílbrigðum á hárgreiðslum.
- áhöldum og efnum sem notuð eru við hárgreiðslur.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- útfæra greiðslur í mismunandi hárlengdir.
- móta hár með rúllum, járnum, nálum og klípum.
- nota viðeigandi hárskraut.
- útfæra mismunandi bylgju- og tímabilagreiðslur.
- móta blautbylgjur í mismunandi útfærslum.
- nota samfélagsmiðla til hugmyndarvinnu og kynninga.
- vinna samkvæmt verklýsingu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útfæra ólíkar greiðslur fyrir mismunandi hárgerðir og –lengdir.
- nota verklýsingar sem hjálpartæki í hárgreiðslu.
- kynna hugmyndir sínar á ýmsa vegu
- ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
Símat.