FRAM3VL13B - Framreiðsla verkleg 2
Lýsing
Áfanginn inniheldur þekkingu og þjálfun í skipulagningu og öguðum vinnubrögðum, uppstillingu veislu og/eða veitingasala, dúkun borða miðað við ýmis tækifæri og þemu ásamt borðlagningu eftir mismunandi matseðlum. Móttöku gesta, framreiðslu frá bar, sjálfstæðum vinnubrögðum í verkefnum. Í notkun á öllum helstu áhöldum, aðferðum, meðhöndlun hráefnis við fyrirskurð og eldsteikingu í augsýn gesta. Í framreiðslu á vínum og umhellingu, beitingu mismunandi framreiðsluaðferða. Lögð er áhersla á tímaáætlanir og að framreiðsla á mat og víni gangi eftir. Fagleg umgengni við gesti, svo sem svara spurningum um matseðil og vín. Þekking og þjálfun í meðhöndlun blóma og undirstöðuatriði í gerð blóma- og borðskreytinga. Áfanginn tekur til þekkingar á tölvunotkun við upplýsingaöflun og notkun forrita sem nýtast faginu til útreikninga, utanumhalds og gerð HACCP- og stjórnunargátlista.
- mikilvægi faglegrar fyrirhyggju og agaðra vinnubragða við undirbúning og framkvæmd verkþátta
- mikilvægi heildarútlits salarkinna og umhverfis
- að framfylgja þeim óskum gesta sem hlotið hafa samþykki
- að hafa fagmennsku í fyrirrúmi í beitingu framreiðsluhátta, tækja og áhalda
- að tímaáætlanir standist
- allri framreiðslu vína, meðhöndlun og umhellingu
- mikilvægi þess að ávinna sér traust gesta skiptir sköpum til framtíðar
- undirbúa fyrir hvers kyns fundi, móttökur og borðhald eða veisluhöld
- stjórna borðauppröðun og borðlagningu fyrir allar tegundir og stærðir matseðla
- skipuleggja vinnu í samræmi við hefðir þar að lútandi
- gera blómaskreytingar og skreyta borð með hliðsjón af hefðum, reglum og tilefni
- skera fyrir og/eða eldsteikja og meðhöndla hráefni í augsýn gesta
- bera fram mat eftir faglegum hefðum
- framreiða frá bar
- taka á móti gestum, vísa þeim til sætis á viðeigandi hátt og miðað við tilefni
- öðlast sjálfstæði í vinnubrögðum
- taka á móti fólki í fjölþjóðlegu umhverfi með þjónustu og almennt siðferði að leiðarljósi
- taka á móti og vinna úr öllum helstu óskum um viðburði innan veggja veitingahúss
- miðla upplýsingum um veitingar sem í boði eru
- leggja á borð og/eða stjórnar borðlagningu samkvæmt mat- og vínseðli
- undirbúa eða stjórna undirbúning á veitinga- og/eða veislusölum
- samhæfa alla þá þætti sem geta stuðlað að eins lýtalausri þjónustu og kostur er
- stjórna og tímasetja framreiðslu á veitingum í samvinnu við eldhús og aðra þá sem að verkinu koma
- skreyta veisluborð, meðhöndla blóma- og borðskreytingar
- vinna sjálfstætt að verkefnum eftir viðurkenndum framreiðslu- og verkferlum