FRAM2BÓ06 - Fagfræði framreiðslu - bókleg 1
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfanginn inniheldur þekkingu á framreiðslustarfinu í heild sinni svo sem á samskiptum við gesti og hlutverk framreiðslumanns fagmennska/sölumennska. Þekkingu á borðbúnaði og notkun hans við borðlagningu, vinnuskipulagi, og undirbúning fyrir hvern þátt starfsins samkvæmt fagvenjum. Þekkingu á réttaþekkingu á helstu fæðuflokkum og hagnýtingu þeirra við matreiðslu. Þekkingu á fyrirskurðar-og eldsteikingaráhöldum ásamt aðferðum við helstu hráefni. Áfanginn tekur til þekkingar á tölvunotkun við upplýsingaöflun og notkun forrita sem nýtast faginu við utanumhald, gerð HACCP- og stjórnunargátlista.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- varðveislu sögu framreiðslu
- að hollusta og heilbrigði í starfi verði meðvituð ásamt helstu atvinnusjúkdómum
- að snyrtimennska í klæðaburð og framkomu verði meðvituð
- að viðhafa lög og reglugerðir sem viðkoma starfinu
- framfylgni fánalaga
- faglegum samskiptum við gesti
- nauðsyn þess að geta miðlað landfræðilegum/ sögulegum staðháttu og staðreyndum
- að virða neysluvenjur þjóða og trúfélaga
- undirbúningi borðhalds, uppröðun og borðlagningu
- líni, áhöldum og glösum
- vali framreiðsluaðferða
- fæðuflokkum og hagnýtingu sláturdýra
- innkaupum á helstu hráefnum, mótöku og meðhöndlun
- greiningu, sundurhlutun, hagnýtingu og vöðvabyggingu villtra- og sláturdýra, fugla og fiska
- notakun tölvu og tölvuforrit í starfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tileinka sér sögulega mótun framreiðslustarfsins
- afla og nýta upplýsingaleiðir til að nálgast lög og reglugerðir sem viðkoma starfinu, notkun íslenska og erlenda þjóðfána, siði og hefðir við þjónustu (protocol)
- nálgast og nýta upplýsingar um land og þjóð
- afla og nýta upplýsingar um neysluvenjur þjóða og trúfélaga
- skipuleggja, undirbúa og þarfagreina borðhald og veislur
- tileinka sér þekkingu á fæðuflokkum, hagnýtingu sláturdýra, matreiðsluaðferðum og réttaþekkingu við dagleg störf
- nýta tölvur í starfi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- umgangast fólk, mannþekkingar, og lipurð í mannlegum samskiptum
- sinna gestum veitingahúsa úr öllum stéttum samfélagsins frá hinum almenna borgara til þjóðhöfðingja
- nýta þekkingu og færni til að uppfylla kröfur þessara mismunandi þjóðfélagshópa
- geta lagt á borð samkvæmt matseðli ásamt glösum fyrir þau vín sem fram verða borin
- taka á móti vöru, umsjón og eftirlit með ástandi (umbúðamerkingar samanburður vörutegunda) sérhæft lagerhald