FFSV4SV05 - Fagfræði framreiðsla stjórnun viðburða
Lýsing
Áfanginn inniheldur þekkingu á skipulagningu, fyrirkomulagi, tilefni, gestafjölda, borðaskipulag, borðlagningu, skreytingum og niðurröðun gesta. Samskipti við eldhús, matseðill, hráefni, matreiðsluaðferðir, meðlæti, uppsetning vinnuskipulags fyrir viðburðinn, tímasetningar á framreiðslu og framreiðsluaðferðir. Pörun vína við rétti á matseðli, af hverju ákveðin vín eru valin ásamt upplýsingum, land, hérað, svæði, framleiðanda, þrúgum og árgangi. Gerð fordrykkja- mat- og vínseðla ásamt upplýsingum sem þar eiga að fylgja. Miðlun allra upplýsinga er varða viðburðinn til þeirra sem að koma. Stjórna og framfylgja skipulagi. Áfanginn tekur til þekkingar á tölvunotkun við upplýsingaöflun og notkun forrita sem nýtast faginu til útreikninga, utanumhalds og gerð HACCP- og stjórnunargátlista.
- að undirbúa, skipuleggja og stjórna veisluhaldi almennt eða eftir tilgreindum hefðum (protocol)
- að setja upp gátlista borða- og vinnuplön
- að skipuleggja framreiðsluaðferðir með hliðsjón af matseðli og réttasamsetningum
- að velja fordrykki og vín og önnur drykkjaföng með hliðsjón af tilefni og matseðli
- að stjórna skipulagi á veitingasal, dúkun, borðlagningu eftir tilgreindum óskum, mat- og vínseðlum
- að skipuleggja borðaplön, móttöku gesta, tímasetningar og hraða og fyrirkomulag framreiðslu
- að gefa hugmyndir um blóma og borðskreytingar
- miðla gögnum er varða pantanir á veislum og samkvæmum til þeirra er málið varða
- vinna og miðla matseðlum og vínseðlum til ákvörðunar á borðlagningu
- framfylgja beiðnum um mismunandi uppsetningar/útfærslur á veislum og samkvæmum
- miðla réttaheitum á matseðlum og geta útskýrt merkingu þeirra
- vinna úr matar- og vínpöntunum fyrir hin ýmsu tilefni
- hafa fagleg samskipti við gesti
- gera magnáætlun á drykkjarföngum tímasetja og stjórna framreiðslu veitinga
- stjórna vörumóttöku
- nota tölvur til upplýsingaöflunar og forrit til útreikninga, utanumhalds og gerðar HACCP- og stjórnunargátlista
- afla og nýta upplýsingaleiðir til að nálgast lög og reglugerðir sem viðkoma starfinu
- nota íslenska fánann og erlenda þjóðfána við tilgreind tilefni
- framreiða veitingar eftir mismunandi siðum og hefðum við þjónustu (protocol)
- afla og nýta upplýsingar um neysluvenjur þjóða og trúfélaga
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og geta unnið og leiðbeint í fjölþjóðlegu umhverfi með mannauð og almennt siðferði að leiðarljósi
- skapa þær aðstæður sem óskað er eftir við mismunandi tilefni
- annast daglegan undirbúning og rekstur veitinga-, funda- og veislusala
- forgangsraða verkefnum, gera pöntunarlista og semja dags-, viku- eða mánaðaplön
- vera virkur eftirlitsaðili í framkvæmd innra eftirlits, gæðastjórnun HACCP
- skipuleggja og tímasetja framreiðslu og framreiðsluhætti við framreiðslu veitinga við öll tækifæri
- vera ráðgefandi hvað varðar framreiðslu í samkvæmum