Fara í efni

FÉLÆ1TÚ02S - Fjármálalæsi með áherslu á neytendavitund

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Í áfanganum er lögð áhersla á fjármálalæsi í víðu samhengi þannig að nemandinn verði læs á fjármála- og neytendaumræðu í samfélaginu. Farið verður yfir helstu persónulegu útgjöld í lífi ungs fólks, heimilisbókhald, verðútreikninga, verðsamanburð, verðgildi, neysluvenjur og markaðsáreiti og gildi þess að halda utan um eigin fjármál.

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi réttinda og skyldna neytenda
  • mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin útgjöld og tekjur
  • helstu fjármálahugtökum
  • einföldun fjármálum daglegs lífs
  • markaðssetningu á vörum og þjónustu m.a. í afþreyingar miðlum
  • verðgildi peninga

Hæfniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • halda utan um eigin neyslu og kostnað
  • afla sér fjármálatengdra upplýsinga sem nýtast í daglegu lífi
  • byggja upp sparnað á einfaldan og hagkvæman hátt
  • lesa auglýsingar og vera meðvitaður um áhrif markaðsvæðingar
  • færa einfalt heimilisbókhald
  • reikna gengi gjaldmiðla

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • halda utan um eigin fjármál með eða án aðstoðar
  • átta sig á tengingunni milli réttinda og skyldna
  • skilja samhengi tekna og útgjalda
  • standa við skuldbindingar sínar og forðast vanskil
  • gera verðsamanburð
  • sýna ábyrgð í fjármálum
Getum við bætt efni síðunnar?