Fara í efni

FÉLÆ1FL02Z - Stærðfræði daglegs lífs með áherslu á fjármálalæsi

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Í áfanganum er unnið með fjármálalæsi í víðum skilningi. Farið verður yfir helstu útgjöldin í lífi ungs fólks og gildi þess að halda utan um eigin fjármál.

Markmið

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • eigin fjármálum
  • mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir útgjöld og tekjur
  • hvað ber að varst í fjármálum

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • reikna út eigin eyðslu
  • lesa úr launaseðli
  • skilja hvað ólíkar lánaleiðir fela í sér

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • halda utan um og hafa yfirsýn yfir eigin fjármál
  • reikna ferðakostnað, matarkostnað og fleira
  • forgangsraða í fjármálum
Getum við bætt efni síðunnar?