Fara í efni

FÉLA1ÞJ03S - Samfélagsfræði - þjóðfélagsfræði

Í boði : Vor
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Unnið verður að því að nemendur verði virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi í samræmi við réttindi sín, skyldur og ábyrgð. Nemendur kynnast helstu stoðum lýðræðis, svo sem jafnræði, tjáningarfrelsi, réttarríki og þátttöku borgara og greina hvernig ákvarðanir eru teknar og hvaða áhrif fólk getur haft. Jafnframt verður fjallað um samskipti, samfélagsleg viðmið, tabú og hvernig orðræða og fordómar móta samfélag og líðan borgara. Nemendur bera saman íslenskt samfélag við einræðisríki og lönd sem búa við stríð, óstöðugleika, fátækt og ójöfnuð og skoða áhrif þess á daglegt líf, menntun og tækifæri þeirra sem við slíkar aðstæður búa. Lögð er áhersla á heimabyggð og hlutverk Íslands í alheimssamfélaginu. 

Markmið:

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu stoðir lýðræðis og hvernig þær birtast á Íslandi og í heimabyggð
  • tengsl réttinda, skyldna og ábyrgðar við daglegt líf
  • mannréttindi, jafnrétti og ójöfnuð, og hvernig fordómar/tabú geta haft áhrif á fólk
  • mun á lýðræði og samfélögum þar sem réttindi eru skert (einræði, stríð/óstöðugleiki, fátækt) og áhrif á lífsskilyrði

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • myndað sér rökstudda skoðun út frá einföldum heimildum og dæmum 
  • tekið þátt í samræðum í litlum hóp, hlustað og sett fram rök af virðingu
  • sett sig í spor annarra og lýst hvernig aðstæður móta tækifæri og líðan 
  • leitað upplýsinga á neti og í fjölmiðlum og metið áreiðanleika í grunnatriðum

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • átt uppbyggileg samskipti og sýnt virðingu í ágreiningi
  • tekið afstöðu gegn fordómum og stutt jafnrétti í nærumhverfi og á netinu
  • nýtt þekkingu til að taka ábyrgari ákvarðanir um eigið líf og velferð 
  • útskýrt hvernig einstaklingar geta haft áhrif sem borgarar – heima og í alheimssamfélagi 
Getum við bætt efni síðunnar?