Fara í efni

Fatasaumur - HÖTE2FA05

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn lærir á saumavél og lögð er áhersla á saumtækni með prufusaumi. Nemandinn lærir að taka líkamsmál og vinna með stærðartöflur, grunnsnið og sniðútfærslur. Kennt er að leggja snið rétt á efni og reikna út efnisþörf og hvernig einfaldar flíkur eru saumaðar. Nemandinn lærir um helstu vefjarefnin, eiginleika þeirra og vinnslu. Lögð er áhersla á að nemandinn skilji vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík og temji sér vönduð vinnubrögð við alla verkþætti.  

Þekkingarviðmið 

Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:  

  • Grunnhugtökum sem tengjast fatasaumi 
  • Saumtækni og vinnu með snið 
  • Hvernig líkamsmál eru tekin og þau borin saman við stærðartöflur 
  • Helstu áhöldum sem tengjast fatasaumi 
  • Heiti, eiginleikum og vinnslu vefjarefna 
  • Alþjóðlegum hráefnis-, innihalds- og meðferðarmerkingum vefjarefna 

Leikniviðmið 

Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:  

  • Sauma einfaldar flíkur, saumtækniprufur og útfæra einföld snið út frá grunnsniðum 
  • Taka líkamsmál, lesa úr stærðartöflum og aðlaga grunnsnið að mældum líkamsmálum  
  • Raða sniðhlutum á efni eftir þráðréttu  
  • Nota saumavélar og meta og nýta sér viðeigandi stillingar sem og fætur og nálar eins og við á hverju sinni 

Hæfniviðmið 

Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • Útskýra vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík  
  • Nýta grunnsnið og gera á þeim breytingar til samræmis við eigin hugmyndir 
  • Meta hvaða vefjarefni hentar í tengslum við notagildi 
  • Ígrunda og ræða um verk sín og vinnuferli í samvinnu við kennara og samnemendur og setja eigin verk fram til kynningar með skýrum hætti 

Getum við bætt efni síðunnar?