Fara í efni

ENSK1UF04S - Upplýsingatækni og fjölmiðlar

Í boði : Ekki alltaf
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Áfangalýsing:

Áfanginn miðar að því að nemendur kynnist ólíkum miðlum og öðlist betri færni í upplýsingatækni á enskumáli í gegnumfjölbreytt verkefni. Unnið verður með grunnþætti í tungumálakennslu, svo sem orðaforða, málfræði, hlustun, tjáningu og lesskilning. Áhersla verður einnig lögð á að nemendur læri að nýta sér öll þau hjálpartæki sem í boði eru og þeim gerð grein fyrir því hvernig þeir geti sjálfir bætt við þekkingu sína. Unnið er að því að efla sjálfstæði nemenda og þeir hvattir til að finna eigin leiðir til að ná árangri í náminu.

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu undirstöðuatriðum í enskri málfræði
  • ólíkum miðlum á enskri tungu
  • ýmsum hliðum upplýsingatækninnar á enskri tungu

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • byggja upp og bæta orðaforða sinn með ýmsum aðferðum sem hentar hverjum og einum
  • beita grunnreglum enskrar málfræði í tali og ritun
  • lesa fjölbreyttar gerðir texta
  • að tjá sig um almenn málefni með viðeigandi orðalagi, munnlega og skriflega
  • hlusta eftir upplýsingum, bæði í samtali sem og útvarps- eða sjónvarpsefni
  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: 

  • nýta orðaforða sinn á skýran og skilmerkilegan hátt í tal- og ritmáli
  • tileinka sér aðalatriðin fjölbreyttum textum
  • beita grundvallaratriðum enskrar málfræði í tal- og ritmáli
  • taka þátt í umræðum
  • sýna frumkvæði, sjálfstæði í upplýsingaöflun, úrvinnslu upplýsinga og uppsetningu verkefna.
Getum við bætt efni síðunnar?