ENSK1UB04S - Sjónvarpsþætti og málefni ungs fólks
Lýsing
Áfangalýsing:
Áfanginn miðar að því að nemendur öðlist færni í undirstöðuatriðum enskrar málfræði, séu færir um að tjá sig um einfalda hluti bæði munnlega og skriflega og skilji daglegt mál. Áhersla verður lögð á að nemendur læri að nýta sér öll þau hjálpartæki sem í boði eru og þeim gerð grein fyrir því hvernig þeir geti sjálfir bætt við þekkingu sína. Unnið er að því að efla sjálfstæði nemenda og þeir hvattir til að finna eigin leiðir til að ná árangri í náminu, því er áhersla lögð á að nemendur vinni sjálfstætt að hinum ýmsu verkefnum og kynningum. Sérstök áhersla í kennslu verður á kvikmyndir og sjónvarpsþætti en einnig málefni ungs fólks.
Markmið:
Þekkingarviðmið Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
● helstu undirstöðuatriðum í enskri málfræði
● þverfaglegum orðaforða til hagnýtra nota
● almennum textum og einföldum kvikmyndaverkum og sjónvarpsþáttum á ensku
● ýmsum menningarsvæðum þar sem enska er fyrsta mál
Leikniviðmið Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
● byggja upp og bæta orðaforða sinn með ýmsum aðferðum sem hentar hverjum og einum
● beita grunnreglum enskrar málfræði í tali og ritun
● lesa fjölbreyttar gerðir texta
● að tjá sig um almenn málefni með viðeigandi orðalagi, munnlega og skriflega
● hlusta eftir upplýsingum, bæði í samtali sem og útvarps- eða sjónvarpsefni
● nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
Hæfniviðmið Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
● nýta orðaforða sinn á skýran og skilmerkilegan hátt í tal- og ritmáli
● tileinka sér aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum
● beita grundvallaratriðum enskrar málfræði í tal- og ritmáli
● taka þátt í umræðum
● sýna frumkvæði, sjálfstæði í upplýsingaöflun, úrvinnslu upplýsinga og uppsetningu verkefna sem tengjast áhugasviði