ENSK1TK02Z - Enska með áherslu á tónlist og kvikmyndir
Í boði
: Vor
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áhersla er lögð á að vinna með ensku í gegnum tónlist og kvikmyndir. Tónlist og kvikmyndir eru valdar út frá ákveðnum þemum sem og áhugasviði nemenda
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að tengja megi áhugamál og nám
- að læra megi tungumál í gegnum tónlist og kvikmyndir
- að tónlist skipar oft stórt hlutverk í kvikmyndum
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- virða tónlistar- og kvikmyndasmekk annarra
- taka þátt í umræðum á ensku
- velja kvikmyndir til áhorfs og tónlist til hlustunar
- afla sér upplýsinga um kvikmyndir og tónlist
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- spyrja spurninga og hlusta á það sem aðrir hafa áhuga á
- að nýta sér ensku til að eiga samræður um tónlist og kvikmyndir njóta þeirrar menningar sem tónlist og kvikmyndir bjóða upp á