ENSK1MM04S - Margvíslegir menningarheimar enskumælandi landa
Lýsing
Áfangalýsing:
Áfanginn miðar að því að nemendur kynnist ólíkum menningarheimum enskumælandi landa og öðlist betri færni í málinu í vinnu á fjölbreyttum verkefnum tengdum þeim. Einnig verður unnið með ýmis orðaforða og málfræðiverkefni ýmist almennt eða þessu tengdu. Nemendur kynna sér hina margvíslegu menningarheima enskumælandi landa um heim allan með því að skoða fréttaefni líðandi stundar ásamt fleiru. Áhersla verður einnig lögð á að nemendur læri að nýta sér öll þau hjálpartæki sem í boði eru og þeim gerð grein fyrir því hvernig þeir geti sjálfir bætt við þekkingu sína. Unnið er að því að efla sjálfstæði nemenda og þeir hvattir til að finna eigin leiðir til að ná árangri í náminu, því er áhersla lögð á að nemendur vinni sjálfstætt að hinum ýmsu verkefnum og öðlist reynslu í samvinnu.
Markmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu undirstöðuatriðum í enskum orðaforða og málfræði
- helstu menningarheimum enskumlændi landa
- mismunandi aðstæðum og lifnaðarháttum fólks á þessum svæðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- byggja upp og bæta orðaforða sinn með ýmsum aðferðum sem hentar hverjum og einum
- beita grunnreglum enskrar málfræði í tali og ritun
- lesa/hlusta á fjölbreyttar gerðir textaog samtöl.
- að tjá sig um almenn málefni með viðeigandi orðalagi, munnlega og skriflega
- hlusta eftir upplýsingum í fjölbreyttu myndefni
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta orðaforða sinn á skýran og skilmerkilegan hátt í tal- og ritmáli
- beita grundvallaratriðum enskrar málfræði í tal- og ritmáli
- taka þátt í umræðum
- sýna frumkvæði, sjálfstæði í upplýsingaöflun, úrvinnslu upplýsinga og uppsetningu verkefna sem tengjast áhugasviði.