ENSK1LM04S - Enskunotkun í kvikmyndum og tónlist
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Áfangalýsing:
Áhersla er lögð á að vinna með ensku í gegnum tónlist og kvikmyndir. Tónlist og kvikmyndir eru valdar út frá ákveðnum þemum sem og áhugasviði nemenda.
Markmið:
- Að tengja saman áhugamál og nám.
- Nemendur þekki til kvikmynda og tónlistar ólíkra menningarsvæða enskumælandi ríkja.
- Virða tónlistar- og kvikmyndasmekk annarra.
- Taka þátt í umræðum og samræðum.
- Spyrja spurninga og hlusta á það sem aðrir hafa áhuga á.
- Láta skoðanir sínar í ljós.
- Byggja upp og bæta orðaforða sinn með ritun og þátttöku í samræðum.