ENSK1GÞ04S - Bókmenntaverk frá ýmsum enskumælandi löndum
Í boði
: Ekki alltaf
Flokkur
: Dagskóli
Lýsing
Markmið áfangans er að auka grundvallarfærni nemandans í tungumálinu og lögð sérstök áhersla á lestur léttra bókmenntatexta frá enskumælandi löndum. Farið er í stytta skáldsögu og áhersla lögð á innihald textans notast er við hlustun í yfirferð hluta lestraefnisins. Lögð eru fyrir stutt ritunarverkefni. Ritun er bæði tengd lesnu efni og áhugasviði nemanda.
Markmið:
Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- algengum orðum og orðasamböndum í rituðu og töluðu máli
- réttri stafsetningu algengra orða sem koma fyrir í námsefni
- almennum rauntextum og einföldum bókmenntaverkum
- notkun hjálpargagna, svo sem notkun stafrænna orðabóka og leiðréttingaforrita
Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- byggja upp og bæta orðaforða sinn með ýmsum aðferðum sem hentar hverjum og einum
- beita grunnreglum enskrar málfræði í tali og ritun
- skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt
- skilja almenna texta og einfalda bókmenntatexta
- nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
- skrifa stutta texta um málefni sem hann hefur kynnt sér
Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta orðaforða sinn á skýran og skilmerkilegan hátt í tal- og ritmáli
- tileinka sér aðalatriðin í stuttum bókmenntatextum
- nýta sér upplýsingar sem koma fram í útvarpi, sjónvarpi og netmiðlum
- taka þátt í umræðum
- endursegja efni sem hann hefur lesið eða heyrt
- taka þátt í umræðum um ýmisleg málefni og taka tillit til skoðana annarra